Leita í fréttum mbl.is

Smá breytingar á heimasíðunni

Ég mátti nú bara til með að gera smá breytingar á síðunni. Setti inn skoðanakönnun, tónlistaspilara og eitthvað fleira. Bjó líka til banner með "logoinu". Sem sagt; smá andlitslyftingu fyrir síðuna. Kv, Joe

Fyrsta æfingin hjá LEXÍU

061Fékk senda þessa líka fínu mynd í morgun. Þarna má sjá þá félaga Marinó og Jón Sverris í einhverju hörku gítareinvígi, mjög einbeittir á svip. Ekki var mannmargt á þessari fyrstu æfingu en eins og kellingin sagði; "það er ekki magnið sem skiptir máli, heldur gæðin". Ég hygg að þetta sé nýja heimili þeirra Jóns og Jóhönnu sem er í Rvk.

Jæja strákar !

Hvernig er það, þurfum við ekki að fara að ákveða einhverja helgina í "æfingabúðir". Koma saman t.d. á Laugarbakka eða Blönduósi (út á landi til að vera í friði), og æfa eina helgi. Hittast á föstudagskvöldi, róta og taka létta æfingu. Æfa síðan vel allan laugardaginn og eftir atvikum á sunnudegi. Skipuleggja þetta vel svo tíminn nýtist vel. Ef við ákveðum þetta með góðum fyrirvara þá ættu allir að geta verið lausir og tekið frá helgi í þetta. Sniðugt, ekki satt. Kv, Joe

Dagskrá Húnavöku 2008 lítur dagsins ljós

Var að lesa frétt á Húnahorninu um Húnavöku 2008. Þar er auðvita hljómsveitin LEXÍA fyrst upp talin í flottri dagskrá sem á að vera þarna.  Kíkið á þessa frétt. Kv, joe Cool

Góðar fréttir

Ég átti langt og skemmtilegt samtal við Marinó í kvöld. Hann var með þær fréttir að Axel trommari væri í fínu formi og kominn með sett til að æfa sig á. Ekki að spyrja að þessum Miðfirðingum. Það verður gaman að hitta kallinn og taka lagið saman. Nú er bara að fara að huga að æfingabúðum og mæta hressir og kátir. Þá las Marinó upp fyrir mig lagalistann og ekki get ég nú sagt annað en flest þessara laga hljómuðu strax í eyrum mér bara við það að heyra nöfnin á þeim. Hljómborðið er á leið í hús og ég þar með orðin klár. Húnavaka, Hvammstangi, Patreksfjörður, Ásbyrgi, bara að nefna það. Joe Cool

Maður verður víst að blogga eitthvað

Héðan er nú allt sæmilegt að frétta. Nema hvað helv.... snjórinn er allt að kæfa hérna á Akureyrinni. Ef heldur áfram sem horfir, þá mæti ég ekki á fyrstu æfingu fyrr en um miðjan maí. Það er að segja, ef ég verð búinn að moka mig út þá. Við, sem erum vanir vetri, úr Húnavatnssýslunni finnst nú nóg komið. Annars fór ég túr í Tónabúðina fyrir helgi og sá þar flottar græjur, sem ég er að spá í að kaupa. Korg X50 Syntha, og ProKeys 88sx rafm.píanó, ásamt BEHRINGER magnara.

Þetta eru flottar græjur og myndu duga vel. En ég er orðin frekar vondaufur að fá nokkur staðar Wurlitzer píanóið. Búinn að leita töluvert hér á landi og spyrjast fyrir. Hugsanlega hægt að kaupa það af Ebay.com en það er mjög dýrt.

Annars stendur það að ég kem um næstu helgi og væri til í að hittast á föstudagskvöldið, ef menn eru tilbúnir í það. Kv, Joe. Cool

 


Fyrsti bloggvinurinn kominn í hús

Jæja, hver annar en eðal Húnvetningurinn hann Gísli Torfi (frændi hans Torfa trommara). Gísli minn, þú ert hér með útnefndur vinur LEXÍU nr: 1.

Sjáumst á Húnavökunni í sumar. Kv, Joe Cool


Ég "diktaði" öll lögin úr útvarpsþættinum

Já, ég fann hjá mér gamlan diktafón sem ég var oft með upp á píanóinu, svona ef andinn kæmi yfir mig þá gæti maður átt eitthvað á teipi. Fékk mér nú samt ekki tækið fyrir en ég var búinn að missa allnokkur góð lög vegna þess að ég mundi þau ekki daginn eftir og kunni ekki að skrifa þau. En sem sagt, ég skipti um rafhlöður í apparatinu fann þáttinn á netinu og spilaði hann allan aftur til að ná lögunum inn á teip. Svo nú get ég sest með apparatið inn við píanóið og hamrað eins og vitlaus maður öll gömlu góðu Lexíu lögin. Gæðin eru ekkert sérstök,,,svona frekar slæm, jafnvel mjög slæm, en það verður að duga þangað til við fáum þetta í digital gæðum. Kv, Joe Cool

Allt á fullu

Það er nóg að gera við að safna saman minningum um feril Lexíu. Nú er komin í leitirnar kassi með fullt af efni sem Marinó er að vinna úr. Lagalistinn er í smíðum. Verið er að pikka inn textana. Myndir eru að fara í skönnun. Já, sem sagt, allt á fullu,,,,, nema músíkin. Wink Við eigum alveg eftir að hittast til að æfa. En þess ber að geta að við erum vanir menn, svo það verður alveg nóg að plögga í samband og telja í, eða þannig sko...Whistling

Annars er ég væntanlegur suður föstud. 4. apríl og þá væri gaman að hittast og stilla sama strengi. Páska-kveðja, Joe Cool


Nú eiga allri sem kíkja á síðuna að skilja eftir sig loppufar...

Já gott fólk. Það eru alltaf um 50-70 manns að kíkja á þessa síðu, daglega. Nú væri fínt að þið skilduð eftir ykkur "fingrafar" með smá kommenti. Nefnið uppaldslagið ykkar, frá okkar gullaldarárum, (c.a. 25 ár síðan), einn broskall, kveðja eða bara HÆ. Það er nefnilega forvitnilegt að sjá hverjir það eru sem kíkja í heimsókn. Joe  Wink

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hljómsveitin LEXÍA
Hljómsveitin LEXÍA
LEXÍA
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Tónlist

Lög og textar

Hérna setjum við upp lagalistan eins og hann var, ásamt viðbótum.

  • - 02-Síðasta halið
  • LEXÍA - Lexía - 01-Verðbólguvögguvísa
    Þetta var vinsælasta lagið með Lexíu, mest spilað í útvarpinu á sínum tíma og alltaf beðið um þetta lag á böllum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband