Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
26.6.2008 | 01:22
Marinó komst í "feitt" í gær
Já hann Marinó bankaði upp á hjá mér um kl. 21.00 í gærkvöldi. Honum var tekið fagnandi og það vildi svo til að konan hafði nýlokið við að baka þessa líka indælu kanilsnúða með súkkulaði á. Þetta bakkelsi, ásamt norðlensku Braga kaffi var skellt á borðið og þar með ætluðum við aldrei að losna aftur við Marinó...
En hann gaf sig þegar byrgðir þrutu og fór heim um 1 leitið. Við spjölluðum margt og mikið og fórum aðeins í gegn um lögin og gekk það bara vel. Stefnan er að hittast svo um aðra helgi, skilst mér og æfa bæði ballprógramm og Lexíuprógramm. Ég mæti.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.6.2008 | 01:18
NÚ eru bara þrjár vikur til stefnu
Marinó að koma norður í Eyjafjörðinn og Raggi Kalli lika, skilst mér. Þannig að við eigum vonandi eftir að hittast og taka lagið saman, við þrír að Löngumýri 1 sem er heima hjá mér. Svo held ég að Jón sé að koma til landsins á morgun þannig að þetta á allt eftir að smella. Æfa þarf ballprógrammið hjá honum Skúla og vinna aðeins við það, ásamt upprifnun fyrir LEXÍU lögin sem við vorum búnir að gera klár.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2008 | 22:50
Mér bara brá !
Já, ég var að kíka á netið í kvöld og auðvita skoðaði ég LEXÍU síðuna. Sá þar að það eru aðeins 33 dagar í Húnavökuna. 33 dagar... Maður er bara orðin spenntur. Eru ekki allir að æfa sig heima ? Svo þurfum við að fara að finna tíma í eitt eða tvö rennsli. Kv, Joe
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Tónlist
Lög og textar
Hérna setjum við upp lagalistan eins og hann var, ásamt viðbótum.
- - 02-Síðasta halið
-
LEXÍA - Lexía - 01-Verðbólguvögguvísa
Þetta var vinsælasta lagið með Lexíu, mest spilað í útvarpinu á sínum tíma og alltaf beðið um þetta lag á böllum.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Spurt er
Hverjir eiga plötuna, (gamla vínilinn), með LEXÍU frá því árið 1982