Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

LEXÍA á poppmynjasafn

Bæjarstjórinn í Vesturbyggð, Raggi Jör, skrapp bæjarleið til Jóns Kr. Ólafssonar stórsöngvara á Bíldudal og færði honum áritaða Lexíuplötu. Hann var hæstánægður. Hann er með merkilegt safn platna og sögusafn undir nafninu „Mellodíur minninganna“.  Lexíu platan verður örugglega höfð í öndvegi  á safninu hjá honum.

 Þeir eru flottir þarna saman, Jón Kr. Ólafsson og Ragnar Jörundsson

 IMG_5664


Jæja, hvernig komu menn undan æfingunum

Allir búnir að ná sér að mestu og æfa sig heima í gríð og erg. Ekki satt. Maður er nú bara svona rétt að lufsast upp með hljóðfærin og ætlaði að stilla upp og tengja hjá mér í dag, en það var 20° hiti á Akureyri í dag, þannig að ég sat bara út á palli með kaffibollann og hafði það næs. Þegar verðrið er svona gott detta manni nú fyrst í hug útitónleikar. Fór fyrir tveimur árum fram að Hrauni í Öxnadal til að hlusta á SigruRós undir berum himni. Það var magnað. Við gætum alveg búið Lexíulögin í þannig búning og spilað undir berum himni.... eða það held ég.....Kv. Joe

Ógleymanleg helgi á Laugarbakka

Við komum saman félagarnir núna um s.l. helgi.

Spenningurinn var mikill, sumir okkar voru að hittast og sjást aftur eftir 25 ár.

Marinó og Raggi Kalli komu á föstudagskvöldið, stilltu öllu upp og gerðu klárt.

Mér tókst loks að vekja þá um kl. 9.30 á laugardagsmorgun. Stuttu seinna komu Raggi Jör og Jón Sverris í hús og bóndinn frá Bjargi kom um hádegi.  Það er skemmst frá því að segja að þetta gekk allt framar vonum. Þrátt fyrir að menn væru lítið eitt ryðgaðir til að byrja með. Fljótlega náðum við vel saman og komumst að því að við höfðum engu gleymt, heldur þvert á móti, okkur fannst við ennþá betri en áður J.

Þessi óvenjulega heimsókn Lexíu á fornar slóðir var fljót að spyrjast út um sveitina. Fyrr en varði fór fólk að týnast inn í félagsheimilið Ásbyrgi til að kasta á okkur kveðju. Við héldum um tíma að við yrðum að læsa húsinu til að fá frið fyrir æstum aðdáendum.  Þá mætti ein virðuleg frú frá Hvammstanga með stórt fat fullt af rjómapönnukökum handa okkur, og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.

Við gáfum okkur tíma til að grilla um kvöldið og svo var keyrt áfram. Um miðnætti þurfti Raggi Jör að yfirgefa okkur og þá fór Axel aftur heim í sauðburðinn. Við hinir vorum eftir og spiluðum til kl. 3.00 um nóttina. Þá var að baki 16 klst. törn og menn orðnir frekar lúnir. Við drifum okkur í kojur og upp kl. 9.00 morguninn eftir og þá var farið í að fínpússa hlutina. Við tókum síðan saman og þessu lauk um hádegi á sunnudeginum. Komið að kveðjustund. Fyrir suma hefði þessi hittingur, einn og sér, verið nóg, en við ætlum að koma eitthvað saman aftur og spila á einhverjum tónleikum í sumar, ef viðunandi tilboð berast.

Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir og vona að þið njótið vel.

Kv, Jóh.Örn.


Nýjar myndir væntanlegar inn á morgun...

Ég bara nennti ekki að græja myndirnar og setja þær inn í kvöld. Var allt of þreyttur eftir "erfiði" helgarinnar. Kv, joe

Maður er bara orðin spenntur,,,,,

Já, ég get nú ekki sagt annað en að maður sé spenntur fyrir þetta "reunion" sem fram undan er um helgina. Ekki bara að spila og rifja upp öll gömlu góðu lögin. Hitt er ekki minna mikilvægt að hitta allan mannskapinn, rifja upp gömul skemmtileg atvik, eiga góða stunda saman og skemmta sér. Þetta verður fín helgi á Laugarbakka.

Hérna eru öll lögin, nema eitt, á Youtube. Gaman að þessu.

Setti saman lista með öllum lögunum sem eru á "Ballprógrammi LEXÍU 2008" eins og kasettan frá Marinó segir til um. Nú getum við smellt á linkinn og hlustað á lögin. Sniðugt, ekki satt.

 

Rock´n roll is king:

http://www.youtube.com/watch?v=rZWXnkfZ-bY

Let your love flow:

http://www.youtube.com/watch?v=WKSNHcsqqKM

It´s o easy:  (Reyndar remix af laginu hennar, en hefur þetta allt).

http://www.youtube.com/watch?v=_9YaxRaUHko

Walk of life:

http://www.youtube.com/watch?v=HrjBddCTCmk

Twisting by the pool:

http://www.youtube.com/watch?v=p5WWs3kgwpg

In your letter:

http://www.youtube.com/watch?v=aAE4eLagRMQ

Down on the corner: (Hér er orginalin)

http://www.youtube.com/watch?v=9ICmGKFz94Q

Have you ever seen the rain:

http://www.youtube.com/watch?v=TS9_ipu9GKw

If youre going to San Fransico: (Vorum við með þetta lag ? )…

http://www.youtube.com/watch?v=PinGgvMvXhY

Marie Marie:

http://www.youtube.com/watch?v=cxEJF6uZJ0A

Down under:

http://www.youtube.com/watch?v=DNT7uZf7lew

Join to the world: (Fann þetta ekki ! )

Do you belive in love: (Hérna er kallinn í sínu besta formi)

http://www.youtube.com/watch?v=6f9nv6HOLM0

Mona Lisa: ( Þetta er líka orginalinn) ! Við vorum nú með þetta rokkaðri útsetningu, ef ég man rétt.

http://www.youtube.com/watch?v=fxEmnxiUz8w

You drive me crazy:

http://www.youtube.com/watch?v=FQ2o5Apl2UU

Take it easy:

http://www.youtube.com/watch?v=Ik2RmsvO99E

Lyin eyes:

http://www.youtube.com/watch?v=UvU6X7S41F4

Peaceful easy living:

http://www.youtube.com/watch?v=KvBQ23jLdIM&feature=related

Hold on tight: ( Og hér er rokkið eins og það gerist best, eða þannig sko)

http://www.youtube.com/watch?v=8TLmpL2AzLs

La Bamba:

http://www.youtube.com/watch?v=Coy8Hoa1DNw

Og þessu vil ég endilega bæta við:

Hold the line:

http://www.youtube.com/watch?v=9f-cEM1l7Ks

 


Þá er það loksins ákveðið !

Það verður Ásbyrgi helgina 16.-18. maí. Er strax farinn að hlakka til. Þetta verður bara gaman. Kannski maður fari niður á Eyri og ræni eins og einu kassettutæki af byggðasafninu svo maður geti verið búinn að hlusta aðeins á lögin áður en við mætum á svæðið....hehe Smile Annars var konan nú að segja mér að það sé kassettutæki í bílnum hennar, svo ég kem kannski á honum og hlusta á leiðinni. Kv, Joe

Umfjöllun um LEXÍU á Húnahorninu

Jájá, maður fær bara ekki frið fyrir blaðamönnum þessa dagana....hehe

Kíkið á þetta hérna , fín umfjöllun um hljómsveitina.

 


Hvaða helgi verðum við í "æfingabúðum" ?

Jæja strákar. Nú þarf að taka ákvörðun. Þær helgar sem til greina koma eru 16.-18. maí eða 23.-25. maí. Eftir að hafa talað við Marinó og Jón þá sýnist mér á öllu að þetta séu þær helgar sem einar koma til greina fyrir allsherjar samæfingu. Annars ekki fyrr en eftir 20. júní, sem mér persónulega finnst nú nokkuð seint. Endilega látið skoðun ykkar í ljós hérna með kommentum á þetta. Kv, Joe

#2 Önnur æfinginn hjá Lexíu

Æfing01Jæja piltar. Önnur opinber æfing hjá Lexíu var í dag. Eins og á þeirri fyrstu, var ekki mannmargt á þeirri æfingu, eða aðeins 1. Já, ég fékk píanóið í dag og var auðvita eins og smástrákur að taka upp jólapakkana. Keypti mér líka þennan fína Sennheizer headfone. Dreif mig síðan í að stilla upp og svo var talið í. Konan náði þessum myndum af mér. Ég set inn nokkur hljóðdæmi hérna á síðuna seinna, þarf að læra aðeins betur á þetta dót. Ég sendi ykkur kannski bara "kasettu" hahaha...LoL

 

Æfing02


Höfundur

Hljómsveitin LEXÍA
Hljómsveitin LEXÍA
LEXÍA
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlist

Lög og textar

Hérna setjum við upp lagalistan eins og hann var, ásamt viðbótum.

  • - 02-Síðasta halið
  • LEXÍA - Lexía - 01-Verðbólguvögguvísa
    Þetta var vinsælasta lagið með Lexíu, mest spilað í útvarpinu á sínum tíma og alltaf beðið um þetta lag á böllum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband