Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Maður verður víst að blogga eitthvað

Héðan er nú allt sæmilegt að frétta. Nema hvað helv.... snjórinn er allt að kæfa hérna á Akureyrinni. Ef heldur áfram sem horfir, þá mæti ég ekki á fyrstu æfingu fyrr en um miðjan maí. Það er að segja, ef ég verð búinn að moka mig út þá. Við, sem erum vanir vetri, úr Húnavatnssýslunni finnst nú nóg komið. Annars fór ég túr í Tónabúðina fyrir helgi og sá þar flottar græjur, sem ég er að spá í að kaupa. Korg X50 Syntha, og ProKeys 88sx rafm.píanó, ásamt BEHRINGER magnara.

Þetta eru flottar græjur og myndu duga vel. En ég er orðin frekar vondaufur að fá nokkur staðar Wurlitzer píanóið. Búinn að leita töluvert hér á landi og spyrjast fyrir. Hugsanlega hægt að kaupa það af Ebay.com en það er mjög dýrt.

Annars stendur það að ég kem um næstu helgi og væri til í að hittast á föstudagskvöldið, ef menn eru tilbúnir í það. Kv, Joe. Cool

 


Fyrsti bloggvinurinn kominn í hús

Jæja, hver annar en eðal Húnvetningurinn hann Gísli Torfi (frændi hans Torfa trommara). Gísli minn, þú ert hér með útnefndur vinur LEXÍU nr: 1.

Sjáumst á Húnavökunni í sumar. Kv, Joe Cool


Ég "diktaði" öll lögin úr útvarpsþættinum

Já, ég fann hjá mér gamlan diktafón sem ég var oft með upp á píanóinu, svona ef andinn kæmi yfir mig þá gæti maður átt eitthvað á teipi. Fékk mér nú samt ekki tækið fyrir en ég var búinn að missa allnokkur góð lög vegna þess að ég mundi þau ekki daginn eftir og kunni ekki að skrifa þau. En sem sagt, ég skipti um rafhlöður í apparatinu fann þáttinn á netinu og spilaði hann allan aftur til að ná lögunum inn á teip. Svo nú get ég sest með apparatið inn við píanóið og hamrað eins og vitlaus maður öll gömlu góðu Lexíu lögin. Gæðin eru ekkert sérstök,,,svona frekar slæm, jafnvel mjög slæm, en það verður að duga þangað til við fáum þetta í digital gæðum. Kv, Joe Cool

Allt á fullu

Það er nóg að gera við að safna saman minningum um feril Lexíu. Nú er komin í leitirnar kassi með fullt af efni sem Marinó er að vinna úr. Lagalistinn er í smíðum. Verið er að pikka inn textana. Myndir eru að fara í skönnun. Já, sem sagt, allt á fullu,,,,, nema músíkin. Wink Við eigum alveg eftir að hittast til að æfa. En þess ber að geta að við erum vanir menn, svo það verður alveg nóg að plögga í samband og telja í, eða þannig sko...Whistling

Annars er ég væntanlegur suður föstud. 4. apríl og þá væri gaman að hittast og stilla sama strengi. Páska-kveðja, Joe Cool


Nú eiga allri sem kíkja á síðuna að skilja eftir sig loppufar...

Já gott fólk. Það eru alltaf um 50-70 manns að kíkja á þessa síðu, daglega. Nú væri fínt að þið skilduð eftir ykkur "fingrafar" með smá kommenti. Nefnið uppaldslagið ykkar, frá okkar gullaldarárum, (c.a. 25 ár síðan), einn broskall, kveðja eða bara HÆ. Það er nefnilega forvitnilegt að sjá hverjir það eru sem kíkja í heimsókn. Joe  Wink

LEXÍA "Gúggluð"

Ef maður "gúgglar" orðið "lexía", þá kemur síða Hljómsveitarinnar Lexíu fyrst upp. Gott mál það eftir aðeins 2 vikur á vefnum. Nú þurfa bara fleiri en ég að skelli inn einni og einni "frétt". Svo má auðvita ekki gleyma pikka inn lagalistann og skanna eitthvað af myndum til að setja inn. Kv, joe  Cool

"Vísiterað" um Húnaþing

Ég var að vinna á Blönduósi í dag. Kom við í Samkaup, Grunnskólanum og auðvita Mýrarbraut 1 (heima hjá tengdó). Og ég segi nú bara eins og í textanum: " þið verðið að trúa mér, ég segi það satt",    fólkið heldur hvorki vatni né vindi yfir því að LEXÍA sé að mæta aftur á svæðið. Það er rosalegur spenningur fyrir því að sjá Lexíu aftur á sviði. Ég hugsa að þetta verði hápunkturinn á Húnavökunni í sumar. Comback LEXÍU. Kv, Joe Cool

Nú fer bara að vanta inn myndir og lög

Nú þurfa menn að fara að grafa djúpt ofaní kassana til að finna myndir, plaköt og fl. þ.h. til að setja inn á síðuna. Einnig pikka inn lögin á word til að hægt sé að copy/paste þau inn á linkinn "lög og textar". Það þarf væntanlega að skanna þessar myndir, sem er svolítil vinna og líka að endurskrifa textana. Einhver sjálfboðaliði tilbúinn í það verk...Tounge joe

Vantar gamalt Wurlitzer rafmagnspíanó

Er ekki einhver þarna úti sem á gamalt Wurlitzer rafpíanó inn í geymslu hjá sér. Mig vantar slíkt sárlega núna, svo að sándið í sveitinni verði sem líkast því sem var fyrir 25 árum síðan. Skiljið eftir skilaboð hérna ef þið eigið, eða vitið um svona grip sem ég gæti keypt.

Jóhann Örn / hljómborð 


1000asti gesturinn skoðaði síðuna í dag

Þegar ég skoðaði heimsóknir á síðuna núna, rétt viku eftir að hún fór í loftið, höfðu yfir 1000 manns skoðað hana. Býsna gott það. Við þurfum kannski að taka íþróttahallir á leigu fyrir dansleikina í sumar, ekki einhver lítil og gömul sveitafélagsheimili. Múúhaaaa

Næsta síða »

Höfundur

Hljómsveitin LEXÍA
Hljómsveitin LEXÍA
LEXÍA
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlist

Lög og textar

Hérna setjum við upp lagalistan eins og hann var, ásamt viðbótum.

  • - 02-Síðasta halið
  • LEXÍA - Lexía - 01-Verðbólguvögguvísa
    Þetta var vinsælasta lagið með Lexíu, mest spilað í útvarpinu á sínum tíma og alltaf beðið um þetta lag á böllum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 25193

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband