Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Lexía v.s. Brimkló og Sálin

Sá þetta skifað sem komment inn á síðunni hans Jens Guð.

Stefán skrifar: "Aldrei hafði ég heyrt á þessa hljómsveit Lexíu minnst, fyrr en ég heyrði farið yfir gamla plötu með þeim í þættinum Geymt en ekki Gleymt á Rás 2 síðastliðinn Laugardag. Þeir hljómuðu svo sem ekki verr en megnið af öðrum íslenskum ballhljómsveitum svo sem t.d. Brimkló og Sálin Hans Jóns Míns".

Ég held nú að þeir Bjöggi Halldórs. og Stefán Hilmars. megi bara vera kátir með þetta...Cool Joe


Takið frá Húnavökuhelgina í sumar

Klappað og klárt. "Kombakið" verður á Húnavökunni í sumar. LEXÍA verður á Húnavökunni í sumar sem haldin verður helgina 11.-13. júlí. Eftir tölvupóstsendingar við framkvæmdastjóra hátíðarinnar í dag, var það ákveðið að við kæmum fram á Húnavökunni. Nánari útfærsla á því með hvaða hætti, verður ákveðin síðar. En ég sé fyrir mér spilamennsku á föstudagskvöldinu í Félagsheimilinu, framkoma á útipalli á laugardeginum og svo auðvita með nokkur númer á aðalballinu á laugardagskvöldinu. Snilld. Kv, Joe

Húnahornið með "frétt" af upprisunni

Já, við erum svo sannarlega að vekja athygli með því einu að hittast yfir kaffibolla. Skoðið fréttina á Húnahorninu: "Lexía snýr aftur í sumar". Gaman að þessu. Nú þurfum við bara að fara að æfa. Ekki fáum við borgað fyrir að drekka kaffi á kaffihúsum höfðaborgarinnar...Wink


Hljómsveitin Lexía

Hljómsveitin var stofnuð á Laugarbakka í Vestur – Húnavatnssýslu 1977. Starfaði með hléum til ársins 1993. Árið 1982 kom út plata með hljómsveitinni og voru meðlimir hennar þá eftirfarandi:

Axel Sigurgeirsson - trommur
Björgvin Guðmundsson - gítar, raddir
Guðmundur Þór Ásmundsson - hljómborð, harmonika, söngur, raddir
Marinó Björnsson - bassi, gítar, raddir
Ragnar Jörundsson - söngur, raddir, ásláttur

Lög: Marinó Björnsson
Textar: Arnór Benónýsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Útsetningar, upptaka og hljóðblöndun: Lexía, Sigurður Bjóla, Gunnar Smári, G. Hjörtur Howser og Helgi Kristjánsson
Aðstoð við hljóðfæraleik og útsetningu: Árni Björnsson bassi, Helgi Kristjánsson hljóðgervill, Þórður Árnason gítar

Hlið A
1. Verðbólguvögguvísa
2. Síðasta halið
3. Frostrósir
4. Segðu það fuglunum
5. Ríma
6. Takið eftir mér

Hlið B
1. Gulldansinn
2. Hver er sinnar gæfu smiður
3. Ágústína
4. Einmana
5. Unglingaást
6. Veita lið

Upptaka fór fram í Hljóðrita í desember 1981 og í janúar 1982
Útgefandi: Tónaútgáfan, Akureyri
Umslag: Marinó Björnsson
Ljósmyndir: Oddur Sigurðsson
Pressun: Alfa, Hafnarfirði
Prentun: Valprent, Akureyri

Nafnið Lexía.
Meðlimir sveitarinnar voru flestir starfandi við Laugarbakkaskóla á þessum árum. Guðmundur Þór var skólastjóri, Marinó lagahöfundur var kennari, einnig textahöfundurinn Arnór Benónýsson.
Ragnar Ingi starfaði sem kennari í Reykjavík og Ragnar Jörundsson var múrarameistari og vann við að múra kennsluhúsnæði skólans.
Kona Ragnars, Svanhvít Sigurðardóttir annaðist mötuneyti skólans.

Tilurð laga og texta:
Vafalaust má telja að áhrif frá umhverfi og starfi hafi átt ríkan þátt í að móta lög og texta en á þessum árum var helmingur nemenda í heimavist. Fyrir utan kennslu þurfti að sinna gæslu og félagsstörfum nemenda. Við kynntumst vel hugarheimi barna og unglinga og væntingum þeirra. Þannig að sumir textanna endurspegla viðhorf unglinga til þess veruleika sem þeir lifðu og hrærðist í.

Upptökur:
Fórum í Hljóðrita í desember 1981 og tókum upp prufuupptökur
( demó ) . Lokið var við upptökur í janúar ´82. Um þessar mundir var sr. Pálmi Matthíasson prestur á Hvammstanga. Hann varð hrifinn af framtakinu og fór með snældu ( kasettu ) til Akureyrar. Lét Pálma Stefánsson sem rak Tónaútgáfuna hlusta á. Honum leist vel á, vildi annast útgáfu og þannig fór þetta af stað. Platan seldist í 1100 eintökum og má teljast nokkuð gott þegar haft er í huga að þá var Rás 2 ekki farin í loftið. Aðeins “Gufan” og spilun fékkst aðeins í þáttum eins og “ Frívaktin (óskalög sjómanna) Lög unga fólksins og Óskalög sjúklinga”. Við kynntum plötuna á Broadway sem þá var á Álfabakka, nánar tiltekið þar sem SAM bíóið er nú.

Tónlistin:
Tónlistin er nokkurs konar þjóðlagarokk með ballöðum á milli. Einnig má þar finna blæbrigði sem minna á sveitatónlist ( kántrý ). Svo eru pönkáhrif og næstum því diskóstemming í nokkrum lögum. Á plötunni eru tvö sjómannalög. Flest lögin eru samin á gítar og nokkur á píanó.

Áhrifavaldar:
Bítlarnir hrundu að stað tónlistaráhuganum. Einnig var hlustað á Moody Blues, Eagles, Electric Light Orchestra, Creedence Clearwater, Deep Purple, Dire Straits, Bruce Springsteen, Santana, Huey Lewis, David Bowie, Toto, Eric Clapton, Cream, Led Zeppelin ofl.

Gagnrýni:
Platan fékk ágætis dóma þrátt fyrir að vera nokkuð sundurleit. Lexía spilaði á dansleikjum fyrir mjög breiðan aldurshóp þannig að tónlistin ber þess merki. Um eitt lagið sagði gagnrýnandi að það væri brim í því. (Ágústína )

Markaðssetning:
Þegar platan kom út var ákveðið að búa til slagorð til að auglýsa hana. “ Lexía kemur á óvart”. Einnig var búið til myndband sem notað var í sjónvarpsauglýsingu en það þótti nýlunda þá. Þar vorum við látnir hlaða vegg úr múrsteinum. Það var tenging gagnvart texta í laginu”Verðbólguvögguvísa” en það var vinsælasta lag plötunnar. Segir þar frá foreldri sem er að reyna að koma barni sínu í háttinn en hefur engan tíma til þess vegna þess að hann er að byggja hús.

Sérstaða:
Vekja má athygli á því að lög og textar plötunnar eru frumsamið efni. Engin tökulög eða eftirlíkingar eins og algengt var á þeim tíma hjá mörgum hljómsveitum. Einnig þótti athyglisvert hversu raddaður söngurinn var. Lexía var fyrsta vinylplatan sem gefin var út í Húnavatnssýslu og jafnvel sú síðasta ef vinylplötur verða ekki teknar í notkun aftur. Þannig að við lítum svo á að platan hafi ákveðið heimildar og menningarsögulegt gildi.

Nýir meðlimir:
Um vorið 1982 urðu breytingar á liðskipun sveitarinnar. Björgvin og Guðmundur Þór hættu en í þeirra stað komu Jón Sverrisson sem lék á gítar og söng. Einnig Jóhann Örn Arnarsson sem lék á hljómborð, harmoniku og raddaði. Þeir bjuggu þá á Blönduósi þannig að við sögðum að tekist hefði að sameina austrið og vestrið. Við æfðum til skiptis í Félagsheimilinu Ásbyrgi Laugarbakka og í Félagsheimili Blönduóss. Á milli þessara staða eru um sextíu kílómetrar þannig að töluvert þurfti að hafa fyrir þessu. Þegar hér var komið sögu var hljómsveitin orðin mjög þekkt á Norður og Vesturlandi og einnig á Vestfjörðum. Spilamennska óx jafnt og þétt þannig að í nokkur ár spiluðum við á dansleikjum tvö kvöld í viku allt árið um kring.Á þessum tíma var flóttinn af landsbyggðinni ekki hafinn þannig að ef dansleikur var auglýstur þá kom fólk til að skemmta sér. Oft var boðið upp á sætaferðir og á þéttbýlisstöðum var jafnvel hægt að spila tvö kvöld í röð, föstudags og laugardagskvöld. Ragnar Jörundsson söngvari annaðist umboðsstörfin og stóð sig með mikilli prýði. Það þurfti að auglýsa í útvarpi, prenta og skrifa á plaköt. Semja við aðila samkomuhúsanna og lögreglu, ráða dyraverði og aðila í miðasölu. Útvega skemmtanaleyfi, borga stefgjöld og skatta og annast launamál hljómsveitarinnar. Um tíma gerði hann út hljómsveitarrútu sem hann keypti. Við tókum eftir því að hljómsveitir úr Reykjavík nenntu ekki að sinna ákveðnum svæðum eins og Vestfjörðum. Þá var þar fullt af fólki og blómlegt athafnalíf. Tvö ár í röð spiluðum við á Suðureyri fimmtudagskvöld, Þingeyri föstudagskvöld og á Patreksfirði laugardagskvöldið en þar var eitt stærsta félagsheimili á landinu. Þangað komu 500 manns á laugardagskvöldi. Á heimleiðinni var komið við í Dölunum og lékum á dansleik sunnudagskvöldið í Tjarnarlundi. Einnig spiluðum við oft á Bíldudal.

Aðrar breytingar:
Mannabreytingar í hljómsveitinni Lexíu hafa verið nokkrar gegnum tíðina. Dæmi: Sveinbjörn Dýrmundsson – Gunnar Smári Helgason – Torfi Gunnþórsson – Ragnar Karl Ingason – Guðbjörg Ragnarsdóttir – Elínborg Sigurgeirsdóttir – Jóhanna Harðardóttir – Björn Traustason – Sigurvald Helgason – Skúli Einarsson.

Læt þennan pistil duga að sinni. Marinó Björnsson


Upprisa LEXÍU farinn að vekja athygli

Einn öflugast bloggari landsins, og tónlistar-skríbentinn, Jens Guð er búinn að setja inn færslu hjá sér um upprisu Lexíu... skoðið þetta hérna.

Sunnudagur við píanóið

Jæja strákar. Þessi sunnudagur hjá mér fór að nokkru leiti fram við píanóið. Eftir að hafa hlustað á þáttinn í gær eru þessi lög búinn að hljóma í hausnum á mér í allan dag. Þannig að ég settist niður og viti menn...lögin voru ekki lengi að verða til í tónum aftur. Bara eins og ég hefði spilað þau á balli í gær. Nú þarf bara að ákveða tóntegundir og VOILA, málið dautt. Cool Joe 


LEXÍA í útvarpi allra landsmanna

Í þættinum "Geymt en ekki gleymt" fjallaði Freyr Eyjólfsson um hljómsveitina Lexíu þar sem farið var  yfir feril hennar ásamt því að spila öll lögin af plötunni, aukalög og Brjáluðu Bínu eftir Jón Sverris. Marinó Björnsson var viðmælandi hans. Snilldar þáttur. Hlustið á hann.

Fyrsti fundur/hittingur hjá meðlimum sveitarinnar í 25 ár

Við ætlum að hittast á ónefndu kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur kl. 14.00 á laugardaginn og stilla saman strengina. Leggja línurnar og sjá hvað kemur út úr því . Svo er bara að fara að bóka á stórhátíðir og stórdansleiki á sumri komanda.

Lagalistinn

Jæja piltar. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti og rifja upp lögin okkar. Setja inn nafn á lagi og flytjanda. Svo virkja ég tónlistaspilarann þegar ég er búinn að fá lögin á stafrænu formi.

 


Þegar austrið og vestrið sameinuðust

Ævintýrið byrjaði snemma vors 1981 hjá mér og Jóni Sverris.

Þá hafði Lexía nýverið lokið upptökum og útgáfu á plötu með lögum eftir Marinó Björnsson.

Tveir af meðlimum sveitarinnar, sem tóku upp með þeim hættu og vantaði þá gítarleikara og hljómborðsleikara í sveitina. Búið að var bóka mikið þetta sumarið og átti að fylgja plötunni eftir með spileríi allt sumarið.

Við Jón mættum á okkur fyrstu æfingu vestur á Laugarbakka á miðvikudagskvöldi. Prógrammið keyrt á fullu og nýju lögin æfð. Við spiluðum síðan með Lexíu á okkar fyrsta balli; á föstudagskvöldinu í Búðardal. Já þá voru menn nú ekkert að víla þetta fyrir sér. Tvær æfingar og sveitinni ballfær. Þarna voru líka úrvals menn á ferðinni, því ásamt mér og Jóni Sverrissyni, voru þarna trommarinn þétti frá Bjargi í Miðfirði, Axel Sigurgeirsson, kennarinn úr Laugarbakkaskóla, Marinó Björnsson og svo auðvita aðalkallinn og söngvarinn, sjálfur Ragnar Jörundsson.

Þetta sumar ´81, og sumarið ´82, var hljómsveitin LEXÍA langmest auglýsta ballsveit landsins. Við spiluðum nánast allar helgar, oft bæði föstudag og laugardag. Í einum af okkar fræga vestfjarðartúrum þá spiluðum við miðvikud. 16. júní á Suðureyri, fimmtud. 17. júní á Þingeyri, föstud. 18. júní á Bíldudal (eða Patreksfirði), og laugard. 19. júní í félagsheimili sem er í Dölunum (man ekki alveg hvað það heitir).

Svona var þetta nú. Þarna var á ferðinni hörkuband, eitt það besta sem ég hef spilað með. Við vorum vel græjaðir og það orð fór af sveitinni að “sándið” væri alveg pottþétt. Ég held meira að segja að þetta sé eina hljómsveitin sem ég hef spilað með sem var með sitt eigið sánd.

Meira seinna,

kveðja

Jóhann Örn Arnarson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hljómsveitin LEXÍA
Hljómsveitin LEXÍA
LEXÍA
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlist

Lög og textar

Hérna setjum við upp lagalistan eins og hann var, ásamt viðbótum.

  • - 02-Síðasta halið
  • LEXÍA - Lexía - 01-Verðbólguvögguvísa
    Þetta var vinsælasta lagið með Lexíu, mest spilað í útvarpinu á sínum tíma og alltaf beðið um þetta lag á böllum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband